Vinsældir mínar ætla engan endi að taka..........................
Júlli bað mig um að taka með sunddót í vinnuna svo við gætum gert okkur glaðan dag þegar Jóhann kemur eftir vinnu. Jújú ég hlýddi því með bros á vör.
Júlli bað mig um að fara heim og vera tilbúin kl.16.50 svo við gætum verið komin tímanlega til að fara á stúss með Óla Bogga (klippimaster). Jújú... ég hlýddi því enda kann vel að meta slíka tímastjórnum og skipulag. Ég var líka rosa ánægð yfir áhugasemi hans á yfirvofandi búðarölti.
Svo erum við að keyra niðrí bæ, þá tekur frú stórn og stýra við.
M:" þú gleymdir að beygja".....
J:"Nei Óli sagði mér að koma aðeins yfir fimm"
M:" Ekki fara svona langt niðrí bæ, beygðu hér"
J: "Það er ekkert hægt að komast héðan niður á Laugaveg"
M:"Jú víst ! "
Svo keyrðum við í smá tíma...
M: JúLLI !!!! ÞÚ ERT KOMIN FRAMHJÁ HÁRGREIÐSLUSTOFUNNI, HVAÐ GENGUR Á.... HVERT ERTU AÐ FARA????"
J: " Hann sagði mér að koma aðeins yfir fimm, ég nenni ekkert að hanga þarna yfir honum þegar hann er að klippa"
M:" Hvað er að þér...klukkan Er yfir fimm.....átta mínútur yfir... við getum bara fengið okkur kaffi á meðan hann klippir "
J: " Viltu kaffi..... ég skal bjóða þér uppá rómantískt kaffi..."
Svo keyrir hann niður í Wc Laugum og hringsólar á bílastæðinu í dágóðan tíma þangað til hann fær lokst stæði rétt hjá húsinu.
J:"Taktu sunddótið þitt með"
M: " Ha erum við að fara í BAðstofuna... ætlum við að hitt óla þar.... höfum við einhvern tíma í þetta....hvað með Jóhann....."
M: " Hvar er sunddótið þitt ? "
J: " Ég fæ bara lánað"
M: "LÁNAÐ !!!.....hva.. gast þú ekki tekið dótið með þér eins og ég... við ákváðum þetta nú í gær....þú ert alveg ótrúlegur"
J: " Æi stelpum finnst svo vont að fá lánað... en það er ekkert mál fyrir mig "
M: " ???????" ég fussa og sveia.
J: " MONIKA.........SLEPPA!!!!!!!
Þá erum við komin inní húsið og tarrarraaaa....................SURPRISE !!!!!
Þóra, Hulda dögg og Stella mættar á svæðið með bakka fullan af súkkulaðihúðum Jarðaberjum og tilbúnar að fá mig lánaða það sem eftir lifir dags.
J: " Hvað segiru þá ! ? "
M: " Fyrirgefðu :( "
Við áttum yndislega stund í Baðstofunni þar sem við spókuðum okkur í potti og gufum, sturtum og steypibaði. Fórum svo inní hvíldarherbergi og jöpluðum á jarðaberjunum. UMMMM.......
Svo tókum við okkur til í rólegheitunum. Keyrt var niður í miðbæ og var ég leidd inná tapasbarinn þar sem við fengum æðislegan mat. Katrín kom svo þangað við mikinn fögnuð og borðaði með okkur. Guðný Helga megaskvís kom svo líka í smá heimsókn þar sem hún hafði ekki mikinn tíma því hún er að flytja til Danmerkur á mánudaginn.
Haldiði að ég hafi ekki fengið pakka líka... oohh þvílíkir öðlingar... en það er nokkuð ljóst að meðal vinkvenna minna ríkir mikill ótti við að " Marriage is a perfect end of good sex life". Þess vegna reyna þær eftir mesta megni að gera þá brotlendingu sem minnst skaðlega með ýmsum hjálpartækjum. Takk fyrir mig elskurnar mínar.
Enduðum svo kvöldið á skemmtilegu pöbbarölti. :) :) :) :) :)
Ó sjúddí-rarí rei.....ó sjúdd-írarí ra...................
Posted at 8/26/2005 7:43:34 pm by monsaskonsa