Er að fara til Slóveníu eftir 4 daga.. ohh hvað það verður gaman, verðum í 4 daga og ætlum að vera alvöru túristar. Gistum á 5 stjörnu hóteli með öllu tilheyrandi umm.. hvað þetta verður næs.... Lúxusherbergi með plasma og allskyns flottheitum. Heilsulind og spa er á staðnum ásamt flottum veitingastað og meira segja spilavíti. Við Kata erum búnar að ákveða að mæta þangað í galadressi með feld um hálsinn og fjaðurhatt með peningabúntinn á milli brjóstanna. Við ætlum sko að spila ferðina okkar til baka !!!
SjáÞað veitir víst ekki af því svo er maður að fara aftur út 11. nóvember, þá förum við fólkið í vinnunni til Vilnius í Litháen, þar ætlum við að skála í kampavíni og skemmta okkur eins og alvöru fólki sæmir. Þetta kallar maður sko árshátíð í lagi !
Svo er ég ótrúlega ánægð með að vera komin inn í Háskólann í Reykjavík. Byrja 11 okóber í einum 3ja eininga áfanga sem kallast Fjármál fyrirtækja :)
Bless í bili kv. Monsa