MonsaSkonsa


Tuesday, October 11, 2005
Slóvenía

Ég er ástfangin af Slóveníu. Þetta land er alveg frábært... bara eins og að koma heim........ Í ljúblijana höfuðborginni þar sem við vorum, búa svipað margir og á ísland. Allt er samt einhvernveginn rólegra og svo finnur maður mjög sterkt fyrir fortíðinni því það eru margar gamlar og glæsilegar byggingar og mannvirki innan um önnur gömul og ný. Fólkið er yndislegt, maturinn frábær og verðlagið er náttúrlega bara djók. Gjaldmiðillinn í Slóveníu heitir Tollar og eru þá 1000 tollar um 300 kr íslenskar. Verðin þarna úti á fötum og slíku er svipað og heima nema við deilum með þremur, ekki slæmt. Þetta þýðir að þegar maður verslar er eins og maður sé að fá 70 % afslátt. Þetta þýddi að við versluðum og versluðum og versluðum... alveg geðveikt :) !!!!

Hótelið sem við vorum á ER truflað. 5 stjörnu lúxus með þjónum útá götu og útum allt. Housekeeping tvisvar á dag sem var ekki lélegt.. enda nauðsynlegt sé ég núna að fá þernur til að gera mann kláran fyrir svefninn :).Hótelherbergið var glæsilegt í alla staði með 42 " plasma sjónvarpi þar sem maður gat farið á netið, horft á sjónvarpstöðvar og bíómyndir ótakmarkað og það var FRÍTT AÐ HRINGJA Í HEIMASÍMA !!! Við voru 6 saman og nýttum ferðina rosalega vel. Reyndar bættist við skemmtilegt par sem var mikið með okkur um helgina. Fórum í 2 skoðunarferðir sem var rosalega skemmtilegt. Alveg sama hvað við gerðum, við vorum alltaf að tauta og raula yfir því hvað allt væri frábært og æðislegt. Við vorum reyndar spurð hvað hafi eiginleg gerst á Íslandi, sem olli því að við færum hingað. Allt í einu fullur bær af Íslendingum :)

Á hótelinu er tyrkneskt spa. Okkur stóð nú ekki alveg á sama þegar okkur var tjáð að sundfatnaður væri óþarfur og reyndar bannaður. En við ákváðum samt að slá til því við vorum búin að panta 80 mín. thai nudd. Jemin eini hvað þetta var geðveikt. Áður en við fórum í nuddi var prógramm í spa-inu. Fyrst var farið í sundlaugina (allsber) sem er fylgir reyndar alveg ótrúlega mikil frelsistilfinning... og svo var farið í blautgufu, þurrgufu og tyrkneska gufu en alltaf á milli átti maður að fara í mentol-úða-sturtu sem er þvílíkt þægilegt og svo átti maður að skrúbba líkamann uppúr ís-kurli sem spýttist úr röri ofaní flott ker. Það að hita og kæla líkamann til skiptist hefur sótthreinsandi áhrif á líkama og sál. Eftir þetta treatment stauluðumst við inní nuddið þar sem maður var lagður á stóra dýnu á gólfinu og nuddaður bak og fyrir af ungum tælenskum stelpum.

Ég segi núna bara spánn my ass !!! glætan að maður fari nokkurn tímann aftur á túristastað þar sem eina takmarkið er að láta mann eyða peningum. Það er pottþétt að við ætlum aftur til Ljulbliana... ég get ekki beðið... langaði ekkert að koma heim.

Reynar erum við að fara til Litháens 11. nóvember. Ég er mjög spennt yfir því hvernig sú ferð verður :)

Endilega láttu vita af þér með því að setja inn komment eða skrifa í gestabókina :)

kv. Skons


Posted at 10/11/2005 10:36:25 pm by monsaskonsa

Monsa
October 17, 2005   12:29 PM PDT
 
Já vá hvað það verður spennandi að hitta ykkur. .....Gaman að sjá eitthvað response hérna. :)
Jóhanna frænka
October 14, 2005   12:53 PM PDT
 
Hæ skvísa
Ég fylgist alltaf með blogginu þínu:)
Hlakka til að hitta þig um jólin
Kveðja Jóhanna, Óli og gríslingarnir tveir
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments







Previous Entry Home Next Entry

Gestabókin

Free guestbook
  • guestbook from soulcircus3
  • guestbook from soulcircus2
  • Welkom in het gastenboek
  • guestbook from stayart>Monikaka Hjálmtýsdóttir


    Mottó dagsins

    Það gerir líkama og sál gott að líta björtum augum til framtíðarinnar. Jákvæð hugsun er góður undirbúningur gegn vonbrigðum ef þau skyldi bera að garði. Neikvæð viðhorf auka aðeins erfiðleikana.
    Breytum til batnaðar !



    <>Fólkið

    Hulda Karen
    Íris Dögg
    Díana Björk
    Einar Siggi
    Guðjón Video


    Heimsíður

    SkímóGassi

    Hagnýtar síður

    Mogginn
    Barnaland
    B2 - Glens
    Hvað kostar bensínið í dag
    >Vísir.is


    Myndir

    Albúmið mitt














  • Contact Me

    If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




    rss feed