MonsaSkonsa


Monday, October 17, 2005
Skóli

Úff... ég verð nú bara að viðurkenna að þessi kúrs í HR er frekar þungur, farið yfir mikið efni, 3 einingar á aðeins 5 vikum.
En góðu fréttirnar eru að mér finnst þetta skemmtilegt og gott að finna þá tilfinningu aftur sem fylgir því að geta leyst eitthvað dæmi eða skilið hreinlega hvað verið er að tala um. Maður er nefnilega alltof góður við sjálfan sig.

Síðustu dagar hafa verið frekar óvenjulegir á heimilinu því nú er allt í akademískum hugsunarhætti, venjulega slökkt á sjónvarpinu, við með heita umræður um námsefnið undir stjórn Andra í Írafár og Jóni Axeli. Andri er góður kennari og er að eigin sögn hrokafullur eðlisfræðingur sem segir að Viðskiptafræðingar kunni ekki neitt því þeir eru svo lélegir að reikna. Hann stjórnar okkur harðri hendi og heimsækir okkur tvisvar í viku í einkakennslu. Að því tilefni hefur Júlli fest kaup á forláta tússtöflu :). Svo er Jón Axel orðinn Viðskiptafræðingur við þennan skóla og er líka að hjálpa okkur mikið. Honum finnst þetta voða krúttlegt allt saman hjá okkur og er alltaf að tala um að við verðum að festa þessar stundir á filmu ...... við ungu sætu hjónin.., með litlu sætu tússtöfluna að læra í litlu sætu íbúðinni okkar... ég veit ekki.... mér finnst þetta ekkert svona rómantískt .... voðalega ertu meyr Jón minn.

Posted at 10/17/2005 12:54:13 pm by monsaskonsa

Kristin Erla
November 3, 2005   03:35 PM PST
 
Hæ skvís
segðu hvar er maðurinn þinn niður kominn nú??
kv
kris
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments







Previous Entry Home Next Entry

Gestabókin

Free guestbook
  • guestbook from soulcircus3
  • guestbook from soulcircus2
  • Welkom in het gastenboek
  • guestbook from stayart>Monikaka Hjálmtýsdóttir


    Mottó dagsins

    Það gerir líkama og sál gott að líta björtum augum til framtíðarinnar. Jákvæð hugsun er góður undirbúningur gegn vonbrigðum ef þau skyldi bera að garði. Neikvæð viðhorf auka aðeins erfiðleikana.
    Breytum til batnaðar !



    <>Fólkið

    Hulda Karen
    Íris Dögg
    Díana Björk
    Einar Siggi
    Guðjón Video


    Heimsíður

    SkímóGassi

    Hagnýtar síður

    Mogginn
    Barnaland
    B2 - Glens
    Hvað kostar bensínið í dag
    >Vísir.is


    Myndir

    Albúmið mitt














  • Contact Me

    If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




    rss feed