MonsaSkonsa


Friday, August 19, 2005
Jón Spæjó !

Loksins lendir maður í einhverju krassandi.

Í gær verður skyndilega uppi fótur og fit þegar DV hringir vegna frétta af svikamillu sem nýlega tók á leigu skrifstofu og starfrækir hér inná sömu hæð og okkar skrifstofa er. Í skyndi er brunað niðureftir og allar fartölvur teknar og læstar inní kompu. Við ætluðum sko ekki að láta ræna okkur enda reyndist staðurinn vera kröggtur af fólki sem í sakleysi sínu virðist lengja eftir skjótfengnum gróða. Þar sem lítið virðist vera að fá uppúr þessum bissness að sögn slúðurblaða er ýmislegt annað auðseljanlegt á staðnum eins og nokkur plasma sjónvörp og annar verðmætur tækjabúnaður. Ónefndur aðili sagðist gruna að höfuðpaurinn yrði flúinn úr landi fyrir dagrenningu þannig að það er eins gott að hafa allan varann á. En við látum sko ekki fúla okkur !

Posted at 8/19/2005 3:00:52 pm by monsaskonsa
Make a comment  




Saturday, August 13, 2005
Myndir

Þetta er Júlli sinn þegar hann var svarthærður




Posted at 8/13/2005 8:05:54 pm by monsaskonsa
Make a comment  




Sunday, August 07, 2005
Monsa Gæs

Ég hef aldrei verið jafn hamingjusöm !

Föstudagurinn byrjaði frekar undarlega. Ekki var kveikt á klukkunni og þegar ég ætlaði loks framúr var Júlíus sko ekki á þeim buxunum. Hann suðaði í mér að kúra lengur en ég skildi ekkert í þessu kæruleysi í honum og þurfti á endanum að rífa mig lausa úr rúminu.

Það var rosalega gott veður og ég var bara mjög kát þrátt fyrir seinlegheitin og lét það eftir mér að fara í hvítu hörbuxurnar mínar og með hárið vel greitt. Ég hugsaði.. jæja loksins læt ég verða að því að fara í þessar blessuðu buxur og var kapakát.

Þegar ég kem út stendur ekki Hulda hrönn heldur kindarleg á svip ! " hæ hvað segiru" sagði hún "hvað ertu að gera" ég gjörsamlega hélt hún væri gengin á göflunum með að heimsækja mig kl. 9.30 á föstudagsmorgun. Ég var ekki að fatta þetta........ alveg ótrúleg..... en það voru breytt plön og ég ekki á leiðinni í vinnuna.

Innan fárra mínútna fór bílunum að streyma og fleiri fleiri stelpur mættar á staðinn. Gert var klárt dýrindis morgunverðarhlaðborð á meðan ég var klædd í dress dagsins. HEIDI búning !!! Ef takmarkið var að hafa mig hallærislega var það ekki að ganga því mér líkaði dressið bara mjög vel og tilbúin í fjörið. Þær sem komu voru Hulda Hrönn, Hulda Karen, Íris Dögg, Katrín, Þorbjörg, Guðný, Þóra og Díana Björk.

Eftir drykklanda stund var ferðinni heitið út. Mér var réttur bjór og vísað útí bíl. Ég vissi ekkert hvert ferðinni var heitið hvorki í þetta skiptið né það sem koma skyldi. Við fórum niður í miðbæ og röltum svolítið, mér fannst svo skrýtið að fólki skyldi verða starsýnt á mig, en það var víst meiningin. Við fórum á Thorvaldsen og sátum þar úti í geggjuðu veðri og þar söng barnahópur fyrir mig lag. Algjörar dúllur. :)

Okkur var víst ekki til setunnar boðið og var skundað á næsta áfangastað. Þá lá leiðin inní kópavog og heyrðist fagnaðaróp frá mér þegar ég sá að við vorum að fara í tívolí. Við hulda fórum í Kúluna svokallaða, svona hálfgert teygjustökk og fengum við vídjóspólu af okkur á eftir. ótrúlega skemmtilegt. VIð fórum svo flestar í annað killer tæki þar sem við migum næstum á okkur úr hræðslu.

Næst var keyrt úr kópavoginum uppí Grafarvog. Vá.. ég gat ekki gert mér það í hugarlund hvað væri næst. Þegar við keyrðum inn afleggjarann hjá Ábyrgðaverksmiðjunni og Sorpu datt mér í hug að við værum kannski að fara í skoðunarferð í Sorpu og jafnvel læra að flokka rusl. Halló.. hvað annað er þarna á þessu svæði ??? SÆÞOTULEIGAN !!!!! "Eru þið ekki að djóka stelpur, erum við að fara á Jet- ski" !!! Þvílíka snilldin, þetta var alveg meiriháttar gaman og fengum við að djöflast á þessum tækjum eins lengi og við gátum. Svo þegar taka átti myndir á bryggjunni hrinti kallinn frá leigunni mér útí sjóinn, hehe og svo hoppuðu stelpurnar útí á eftir. Hulda Karen fær sérstaka viðurkenningu fyrir að hafa einstaklega góðan hoppustíl.

Við vorum svolítið lúnar eftir þetta, með sjó og salt í augunum. Hvað var þá betra en að fara í Baðstofuna í Laugum á eftir. Ummmm.. það var svo næs. Við fórum yfir stöðuna í pottinum og gufunum á meðan verið var að matreiða ofaní okkur kræsingar. Þegar þær voru klárar fórum við inná restaurantinn sem er inná baðstofunni og skáluðum í mat og drykk í sloppunum. Þegar við vorum saddar og sælar fórum við í hvíldarherbergið og létum líða úr okkur í dágóða stund í laser-boy með brakandi arin-eld við tærnar.

Þetta var sko ekki búið þarna. Við klæddum okkur og gerðum okkur klárar fyrir næsta áfangastað. Við lentum heima hjá Huldu Hrönn. Þegar við gengum inní íbúðina blasti við uppádekkað borð. Við vorum mættar í sælkera matarboð. Hjördís kom svo áður en maturinn byrjaði. Í forrétt var Humarsúpa með humri útí, í aðalrétt var Lamba fille- Rib eye með bakaðri karföflu, salati og rauðvíni og hvítvíni. Gylfi eðalkokkur maðurinn hennar Huldu Hrannar hafði yfirumsjón með matseldinni þó hann hafi verið hvergi nærri. Þetta var alveg geggjað. Æðislegt að borða svona frábæran mat heimavið, miklu skemmtilegra heldur en við værum á veitingastað. Svo tók bara partí við.

Þegar líða fór á kvöldið var enn eitt atriðið eftir. Pakkar !!!!! Ég er ekki að djóka, það voru allar búnar að kaupa pakka handa mér. Þetta er skemmtilegasta pakkastund sem ég hef upplifað. Fyrst kom Íris og Gaf mér rosa flottan ryk-kúst, bolla og 10 svampa, af því ég er svo þrifsjúk. Hulda Karen gaf mér Strengjabrúðu-páfagauk sem var á stundinni nefndur Janni í höfuðið á gamla páfagauknum mínum ásamt fleiru nytsamlegu í svefnherberginu. Þorbjörg gaf mér foláta víbrator-sápu, rauða hjartalaga. Guðný gaf mér flottar durexvörur og Hulda Hrönn líka. Svo fékk ég eitthvað fleira sem ég man ekki alveg sökum ölvunar og fjarlægðar frá dótinu. Eftir frábært partý var farið niður á Óliver og djammað fram á morgun. Þar hitti ég loks Júlíu og gaf hún mér svaka flottar Lunda-spennur í hárið.

Þessi dagur var hreint út sagt ótrúlegur og er ég alveg ólýsanlega þakklát fyrir það sem þið vinkonur mínar gerðu fyrir mig. Það að þið skuluð leggja út ómælda ást, vinskap, fjárútlát, frábært hugmyndaflug og skipulagningu til þess að gera mér ógleymanlega glaðan dag hlýjar mér hreint út sagt um hjartarætur sem aldrei fyrr. Engin tilfinning er eins góð og að finna fyrir ást og vinskap og fékk ég svo sannarlega að finna það frá ykkur.

Elsku Hulda Hrönn, Hulda Karen, Íris Dögg, Katrín, Þorbjörg, Hjördís, Guðný, Júlía, Þóra, Díana Björk og allar þær vinkonur mínar sem ekki komust á föstudaginn ! Takk fyrir að vera frábærar vinkonur, mér finnst ég vera heppnasta manneskja í heiminum að eiga ykkur að. Það hefur aldrei neinn komið mér eins mikið á óvart og gert mig eins glaða og þið hafið gert og verður það varla toppað. TAKK TAKK TAKK :) !!!!

ps. Takk Júlli ástarengill.

Posted at 8/7/2005 3:42:29 pm by monsaskonsa
Comments (4)  




Thursday, July 28, 2005
Hofsós -here I come !

VIð ætlum á Útíhátíð á HOFSÓS - ekki spyrja mig en það er einhver plebbastaður fyrir norðan og við erum sjúklega spennt því að þegar við komum á staðinn verður allt vitlaust.

Að sjálfsögðu hugsa ég vel um mitt fólk og er búin að baka kryddköku fyrir ferðalagið:


Hér kemur uppskriftin:

3 dl hveiti
3 dl haframjöl
2 dl púðursykur
1/2 tsk. negull (duft)
1/2 tsk. engifer (duft)
2 tsk. matarsóti
2 tsk. kanill
3 dl mjólk

Blandar þurrefnunum fyrst saman bætir svo mjólk útí og setur í marmaraform (2 lítil eða 1 stórt).


þetta brauð gerir alla vitlausa. Um daginn bakaði ég kryddbrauð og bauð nágrönnunnum í bita og í alvöru talað þeir voru eins og úlfar í afmæli og heimtuðu meira.

Posted at 7/28/2005 1:16:59 pm by monsaskonsa
Make a comment  




Tuesday, July 26, 2005
Endurfundir

Eins og ég sagði... hann kemur heim þegar hann er tilbúinn. Eftir 9 daga volæði, ótal göngutúra og bíltúra ákvað Nói sinn að tími sinn væri kominn. Á laugardagskvöldið vorum við á leiðinni á útgáfutónleika með Róberti og hljómsveitinni ÉG þegar við sjáum litla greyið sitja á gangstéttinni sallirólegur og tilbúinn að koma heim. Við náttúrulega gripum andann á lofti og júlli sýndi mikil tilþrif þegar hann skutlaði sér ofaní blómabeð (hræddur um að missa af honum) og náði Nóa sínum.


Óvissuferðin hans gekk greinilega ekki eins vel og við var að búast því kattargreyið virtist ekki hafa fengið að éta dögum saman og hann var allur skrambúleraður og fínn, tannlaus með tattó........eins og pabbi sinn.



Posted at 7/26/2005 4:08:08 pm by monsaskonsa
Make a comment  




Friday, July 15, 2005
Nói Síríus Pabbason

Nói "sinn" er týndur........

snifs....snifs..

Hann er horfinn af yfirborði jarðar, sást síðast til hans við matardallinn miðvikudaginn 13/7 --2005. Grunur leikur á að hann hafi verið brottnuminn af yfirnáttúrlegum verum. Kenningar eru um að hann hafi flatt út höfuðbeinin og troðið sér út um lokaðan glugga.

Allir þeir sem geta veitt upplýsingar um "Ginnanna" vinsamlegast hafi samband við Moniku í S. 695-2757. - hann er brennimerktur 4R-181


snifs....snifs..........

Posted at 7/15/2005 1:11:10 pm by monsaskonsa
Comment (1)  

Portúgal

Rosalega er ég heppin að hafa verið í Portúgal.

Posted at 7/15/2005 12:55:40 pm by monsaskonsa
Make a comment  




Monday, May 30, 2005
Sveitasælan

Við eyddum allri helginni hjá Grétari bónda og frú Ingibjörgu á Þinghóli.
Í skorradal er gott að vera ......

Það var talsvert unnið - pallurinn skrúbbaður og lakkaður, svo voru borin heil 3 hlöss af möl sem fór í bílastæðið og göngustíginn. Ég gerði samt ekkert... heimasætan !!...Ég lét fara vel um mig (: las Moggan, Dagblaðið, Fréttablaðið, Séð og Heyrt og Birtu, svo lá ég í sólbaði, borðaði heil ósköp, horfði á bíómynd, svaf og fór í nokkra gögtúra í stórbrotinni náttúrunni.

Á sögustundum var Júlli alveg sérstaklega vel stemmdur og voru kúk og piss brandarar í hávegum hafðir.... djöfull hlógum við.......hahahaha það voru svona móment þegar allir voru grenjandi úr hlátri... allir að reyna að tjá sig eitthvað... allir samt einhvernveginn hver í sínum heimi.. hehehe...

Posted at 5/30/2005 1:50:14 pm by monsaskonsa
Comment (1)  




Thursday, May 26, 2005
Hugrenning

Oftast er ég kurteis og góð stelpa - ég er sjaldan uppvís að því að sýna öðru fólki ókurteisi og dónaskap.

Yfirleitt vil ég ekki gera veður útaf því ef hár finnst í matnum á veitingastað eða þá að ég sýni mikla óþolinmæði þegar ég hef beðið lengi eftir þjónustu í búð.

Málið er nefnilega það að oftast er það maður sjálfur sem er að skapa leiðindin - þó svo að það líti oft út fyrir að hlutirnir séu öðrum að kenna. Maður bara sér það ekki. Það er sorglegt.



Posted at 5/26/2005 5:16:30 pm by monsaskonsa
Make a comment  




Wednesday, May 18, 2005
Skorradalurinn

Jú þetta er alveg dag-satt !!!

Við vorum að kaupa sumarbústaðarlóð í Skorradalnum á himneskum stað. Þegar ÉG segi að hlutirnir séu fullkomnir... þá eru þeir fullkomnir.... þessi staður er fullkominn heh.. næstum of gott til að vera satt... þetta ER satt ! hmmm...

Ég var nú búin að ákveða að svona framkvæmd væri ellidraumur en af hverju að bíða þegar tækifærin svífa yfir manni. Síðustu tveir dagar hafa farið í það að finna rétta húsið... og jú.. við erum búin að finna það.

Júlli er eins og honum er lagið búin að koma sér VEL fyrir hjá bóndanum í dalnum... þeir eru orðnir bestu vinir og allir sem voru þvílíkt búnir að vara okkur við hvað bóndinn væri sérstakur.... nei nei.. . Júlli sá til þess að það yrði ekkert vesen og dró fram sinn besta mann (Sveitamanninn) og fór yfir helstu ættfræði og landfræði og nú elskar kallinn okkur. Við vorum hjá þeim hjónum í dag í kaffi og að borga staðfestingagjaldið. Þá var reitt fram reiðufé og kunni kallinn vel að meta það.

Núna er Júlli orðinn bóndi í "Haga" og ég er frúin.

Posted at 5/18/2005 5:42:50 pm by monsaskonsa
Comments (2)  




Previous Page Next Page

Gestabókin

Free guestbook
  • guestbook from soulcircus3
  • guestbook from soulcircus2
  • Welkom in het gastenboek
  • guestbook from stayart>Monikaka Hjálmtýsdóttir


    Mottó dagsins

    Það gerir líkama og sál gott að líta björtum augum til framtíðarinnar. Jákvæð hugsun er góður undirbúningur gegn vonbrigðum ef þau skyldi bera að garði. Neikvæð viðhorf auka aðeins erfiðleikana.
    Breytum til batnaðar !



    <>Fólkið

    Hulda Karen
    Íris Dögg
    Díana Björk
    Einar Siggi
    Guðjón Video


    Heimsíður

    SkímóGassi

    Hagnýtar síður

    Mogginn
    Barnaland
    B2 - Glens
    Hvað kostar bensínið í dag
    >Vísir.is


    Myndir

    Albúmið mitt














  • Contact Me

    If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




    rss feed