|
Þá er demantsgljáða honnímúnið að baki og maður kominn aftur í gráan hversdagsleikan.
Nokkrar myndir af okkur "hjónum" (Og nú segi ég það með sönnu) eru komnar á síðuna hjá Undrabarninu www.gassi.is undir Brúðkaup 2.
3 september var snilldar dagur og ég er ekki frá því að þetta hafi verið skemmtilegasta partý sem ég hef farið í :) Þökk sé öllu því frábæra fólki sem sem áttu þátt í að gera þennan dag ógleymanlegan... og að sjálfsögu okkur líka því við erum líka frábær, og kokkarnir og allir hinir viðskiptamennirnir :) ...... ég var einmitt að spá í því .... það hlýtur að borga sig að stofna kennitölu í kringum svona brúðkaup... þetta er rosa útgerð þegar maður vill halda góða veislu.
En við ráðum alveg við þetta .... erum svo rík.......................... af ást.
|