Entry: Komin aftur Friday, November 25, 2005



Jæja já.. góðan daginn LíF. Nú get ég tekið gleði mína á ný og litið dagsins ljós, próf-draslið er að baki. Get farið að taka til á ný, vinna, henda gömlum blöðum, horfa á sjónvarpið, setja í vél og stunda almennt slæpingslíf. Ahhh.. hvað frelsið er gott 
Mér gekk bara ágætlega í prófinu, svo fékk ég líka 8,5 fyrir verkefnið svo þetta lofar ansi góðu hjá mér.

Yemin eini ég átti svo auðvitað frábært kvöld í gær. Kom heim úr prófinu og hlammaði mér beint fyrir framan sjónvarpið – Hey Herra Ísland. Allaf gaman að sitja í dómarasæti og stúdera mis-flotta og -klára kroppa. Sigrún Bender rosa sæt skvísa og flott til höfð, en ég hefði ekki lagt í að frumraunin yrði í beinni, það eru alltof margar reglur sem þarf að komast uppá lagið með fyrst, eins og td. að hlusta á viðmælendur og þakka fyrir.... úps !. En Jeddúmía.... er ekki lágmark að dobbul-tékka hvort allir keppendur séu ekki örugglega búnir að fá úthlutað símanúmer þar sem keppnin gengur 100% útá símakosningu ????? Nei..... það gerðist...... Skandall ÁRSins, váá hvað þá á eftir að hlæja mikið að þessu. Það klúðraðist, einn gæinn og nota bene sætasti gæinn fékk ekki úthlutað númer... " Og það eina sem við getum sagt er að okkur þykir þetta mjög leitt, og eitt klapp á öxl" Nei nei gæinn bara búinn að púla í 6 mánuði, liggja í ljósum og brúnkuklefum og ég veit ekki hvað og hvað, en hey .. sorry ! Og sá sem vann, gekk á tveimur símanúmerum..... EN ekki HVAÐ ????? og vinnur titilinn á röngum forsendurm...æjæjæjæ !! Við Þóra og Hulda Dögg hlógum svo mikið þegar ég áttaði mig á því að gæinn sem birtist helmingi oftar en allir hinir á skjánum var í þann mund að vera krýndur. Við töpuðum okkur gjörsamlega...........


Heyr heyr Skjár Einn !!

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments